Lifestyle Whey Protein 900gr – Ice Coffee
6.990 kr.
Swedish Supplements Lifestyle Whey sameinar frábært bragð og hágæða prótein í frábærri vöru. Fullkomið fyrir þá sem vilja byggja upp eða viðhalda vöðvamassa án málamiðlana
- Um 75% próteininnihald
- 27 skammtar í hverjum poka
- Inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar
- Ríkt af BCAA (greinóttum amínósýrum)
- Styður við vöðvauppbyggingu og viðhald
- Létt, mjúkt og bragðgott prótein
- Þægilegar umbúðir – auðvelt að taka með sér
20 á lager
Lifestyle Whey Próteinið er ofboðslega bragðgott og hentar vel þeim sem vilja bragðgott og vandað concentrate prótein bæði til drykkjar, á grauta í bakstur og til bragðbætingar í mat. Hér er á ferðinni 900gr af fyrsta flokks próteini sem blandast mjög vel, 27 skammtar í hverri pakkningu, og verðið hreint út sagt stórkostlegt.
Í hverjum 33gr skammti eru um 22,3gr af próteini, 2,7gr af kolvetnum og 2,3gr af fitu, ásamt 18 tegundur amínósýra. 128kcal
Lifestyle Whey er hágæða mysuprótein (whey) með framúrskarandi líffræðilegri nýtni (bioavailability), sem gerir líkamanum kleift að nýta próteinið á sem skilvirkastan hátt. Mysuprótein er eitt vinsælasta próteinið þegar kemur að vöðvauppbyggingu, enda inniheldur það allar lífsnauðsynlegar amínósýrur ásamt háu hlutfalli af BCAA sem styðja við vöðvavöxt og endurheimtur.
Gerðu prótein-inntökurnar þínar skemmtilegar og draumi líkastar þegar kemur að bragði.
Prótein stuðlar að aukningu á vöðvamassa, hjálpar til við að viðhalda vöðvamassa og stuðlar að viðhaldi og styrk beina.
Ofnæmisupplýsingar: Inniheldur mjólkurprótein og laktósa.
Efnið kemur ekki í staðinn fyrir hollt og gott matarræði, en er fullkomin viðbót þegar það á við.
