Lýsing
BIG-T er mjög öflugur testósterón booster fyrir þá sem vilja auka náttúrulega framleiðslu líkamans á þessu mikilvæga kynhormóni sem stuðlar meðal annars að auknum vöðvamassa, fitutapi, aukinni æfingargetu og umfram allt bættri líðan og sálarheill, því skortur á testósteróni getur hæglega valdið þunglyndis-einkennum og almennri deyfð.
Testósterón spilar lykilhlutverk þegar kemur að heilbrigði karlmanna (og annarra kynja líka) en skortur á þessu hormóni getur ekki aðeins leitt til þess að erfitt sé að byggja upp styrk og vöðvamassa heldur getur það haft veruleg áhrif á andlega líðan svo ekki sé minnst á kyngetu og kynlöngun. Big -T eða “Stóra T’ið” inniheldur vel valin efni sem koma jafnvægi á þessi hormón.
Magn í sölueiningu: 350gr
Hvernig á að taka:
Smelltu einni skeið eða 7gr saman við dass af vatni í glas eða brúsa, hrærir eða hristir og skellir í þig. Þú getur líka sparað uppvask, tekið duftið þurrt, drukkið vatn og hoppað í smástund.. en það væri ótrúlega skrítið og við mælum ekkert sérstaklega með því.
Næringarupplýsingar:
Magn í einni skeið: 7g | Fjöldi skammta í sölueiningu: 50 | ||
100 g | 7 g | RDS%* | |
Orka | 959 kJ/227 kcal | 67 kJ/16 kcal | 0.8% |
Fita | 0.1 g | 0 g | 0% |
– Þ.a. mettaðar fitusýrur | 0.1 g | 0 g | 0% |
Kolvetni | 17.9 g | 1.3 g | 0.5% |
– Þ.a. Sykur | 1.3 g | 0.1 g | 0.1% |
Prótein | 24 g | 2 g | 3.3% |
* RDS Miðað við meðal-manneskju (8400 kJ/2000 kcal).
Innihald:
Maltódextrín, L-lýsín, D-aspartínsýra, L-glýsín, sýrustillir (sítrónusýra), L-arginín, L-glútamín, ilm (kirsuber), L-ornitín, magnesíumoxíð, sætuefni (asesúlfam K, súkralósi ), Lepidium Meyenii rótarþykkni 10:1, L-karnitín-L-tartrat, L-karnitín N-asetýl, níasín, sinkoxíð, litur (Ponceau 4R) * * , pýridoxínhýdróklóríð, krómpíkólínat.