PGP Rice Of Champions 1000gr Vanilla
4.990 kr.
Rice of Champions eða Cream of Rice frá PGP er frábær valkostur í morgunmat, sem millimál eða sem kolvetnagjafi fyrir og eftir æfingar.
- Bragðgóður og auðmeltanlegur orkugjafi fyrir virkan lífsstíl!
- Auðveld og fljótlegt í undirbúningi – Tilbúið á 2–3 mínútum.
- Þægilegur orkugjafi, hentar vel fyrir eða eftir líkamsrækt.
- Ríkur af kolvetnum: Gefur 37 g af kolvetnum í 50 g skammti
- Aðeins 0,5gr af fitu í hverjum skammti.
- Innan við 0,5 g af sykri í 100 g.
- Tilvalinn einn og sér eða með ávöxtum, berjum, hnetum eða próteindufti.
1 á lager
Rice of Champions / Cream of Rice frá Pure Gold Protein er ljúffengur og fljótlegur hrísgrjónagrautur sem hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja bæta kolvetnum við mataræðið á einfaldan og þægilegan hátt.
Varan er þróuð með þarfir íþróttafólks og þeirra sem stunda reglulega líkamsrækt í huga. Grauturinn er með mjúka og rjómakennda áferð, inniheldur lítið af fitu og sykri og er tilbúinn á aðeins 2–3 mínútum.
20 skammtar í hverri pakkningu.
| Næringarefni | Í 100 g | Í 50 g skammti |
| Orka | 1436 kJ / 339 kcal | 718 kJ / 169 kcal |
| Fita | 0,9 g | 0,5 g |
| – þar af mettuð fita | 0,4 g | 0,2 g |
| Kolvetni | 73 g | 37 g |
| – þar af sykur | <0,5 g | 0 g* |
| Trefjar | 3,3 g | 1,6 g |
| Prótein | 7,7 g | 3,8 g |
| Salt | 0,98 g | 0,49 g |
Innihaldsefni
Hrísgrjónamjöl, fituskert kakóduft, bragðefni, matarsalt, sætuefni (asesúlfam K og súkralósi) og þykkingarefni (xantangúmmí).
Ofnæmisupplýsingar: Framleitt í verksmiðju þar sem einnig eru unnin hráefni sem innihalda mjólk, egg, glúten, soja, jarðhnetur, hnetur, fisk og krabbadýr.
Leiðbeiningar um notkun
- Setjið 50 g af Rice of Champions í skál.
- Bætið heitu vatni (um 80°C) eða mjólk saman við eftir því hversu þykkan graut óskað er eftir.
- Hrærið vel saman.
- Látið standa í 2–3 mínútur.
- Njótið!
Ábending frá Fitness Akademíunni:
Prófaðu að bæta einum skammti af Whey Deluxe próteindufti út í grautinn ásamt ferskum berjum eða niðurskornum banana. Þannig færðu bragðgóða máltíð sem inniheldur bæði kolvetni og prótein – frábæran kost fyrir eða eftir æfingu.
Geymsla
Geymið á þurrum og svölum stað, varið gegn hita og beinu sólarljósi. Lokið umbúðum vel eftir notkun.
Nettóþyngd: 1000 g
Skammtastærð: 50 g
Fjöldi skammta: 20
Framleiðandi: Pure Gold Protein
RICE OF CHAMPIONS – Bragðgóð orka fyrir næstu áskorun!
Athugið að vara sem þessi er eingöngu ætluð til fæðubótar og kemur ekki í staðinn fyrir hollt og gott matarræði. Ávallt skal leita ráða hjá lækni ef vafi leikur á um hvort neyta skuli vara sem þessarar. Vöruna má ekki taka með lyfjum vegna mögulegra krossverkana. Efni eins og þetta er almennt ekki ætlað börnum. Varan gæti innihaldið ofnæmisvaka.
