Lýsing
Vel hönnuð og þétt 5mm hnéhlíf frá Matibas veitir góðan stuðning og aðhald við hné og í kringum hnjálið, Hlífin er millistíf og neophrame-efnið í henni gerir það að verkum að hún er í senn hreyfanleg og þétt, en á sama tíma heldur hún góðum hita á svæðinu sem hún dekkar. Hlífin hentar ekki bara „gym-förum“ við æfingar, heldur öllum þeim sem vilja og/eða þurfa stuðning við hnjáliðina.
Hlífin er sérstaklega gerð að ósk okkar hjá Fitnessvefnum, en við höfum verið í líkamsræktarbransanum í yfir 30 ár.
Stærðir:
Mælið ummál um ókrepptan hnjálið (há-hné)
Small hlífin er 23cm á hæðina – hentar ummáli 33-35,5 cm.
Medium hlífin er 24cm á hæðina – hentar ummáli 35,5-38 cm..
Large hlífin er 25cm á hæðina – hentar ummáli 38-40,6 cm.
X-Large hlífin er 26cm á hæðina – hentar ummáli 40,6-43cm.
XX-Large hlífin er 27cm á hæðina – hentar ummáli 43-48cm.
Athugið að ef þú mælist við neðri mörk, væri skynsamlegt að taka næstu stærð fyrir neðan fyrir aukinn þrýsting og aðhald.