Lýsing
Tárínið eða Taurine hefur svipaða uppbyggingu og aðrar amínósýrur og hefur andoxandi áhrif. Það fyrirfinnst náttúrulega í próteingjöfum á borð við kjöt, fiski og mjólk. Einhverjar rannsóknir * hafa sýnt fram á að inntökur á táríni hafa árangursbætandi áhrif á íþróttafólk og önnur rannsókn sem við rákumst á sýndi þær niðurstöður að þegar fólk með undirliggjandi hjartasjúkdóma tók tárín þrisvar á dag í tvær vikur með æfingum, bætti verulega í getu og þrek. Þar fyrir utan þykja kannanir* sýna að sé efnið tekið með koffíni, bæti það einbeitingu.. og einmitt af þeirri ástæðu er táríni gjarnan bætt í orkudrykki.
Mælt er með að taka 1 skammt (5gr) í100mlaf vatni 2 sinnum á dag á æfingardögum, og þá helst við vöknun, og fyrir eða eftir æfingar. Á non-æfingardögum er toppnæs að taka 1 skammt, 5gr í vatn. Á Jólunum er mælt með að taka… nei ok.. látum æfingardaga og non-æfingardaga duga.
300gr í einingunni
Næringargildi í pr 10gr af duftinu:
8,9gr L-glutamín
1,0gr Tárín
Tilvísanir vegna vörutexta:
- Taurine. Natural Medicines. https://naturalmedicines.therapeuticresearch.com. Accessed Dec. 12, 2017.
- Taurine. Micromedex 2.0 Healthcare Series. http://www.micromedexsolutions.com. Accessed Dec. 12, 2017.
- Energy drinks. National Center for Complementary and Integrative Health. https://nccih.nih.gov/health/energy-drinks. Accessed Dec. 12, 2017.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar