Lýsing
White Grip blautkalkið frá FitCo er eitt af því sem er glatað að eiga ekki til þegar á þarf að halda, hendurnar sveittar en góðs grips er krafist. Blautkalkið leysir öll þessi vandamál.. þurrkar sveittar hendurnar og gefur gríðarlega gott grip og það án þess að allt verði löðrandi ógeðslegt í klístri og kámi, eða eins og Pablo Escobar hafi hnerrað í kringum þig eins og þekkist þegar unnið er með hefðbundnu kalk-kubbana sem skilja eftir sig hvítt duft allsstaðar.
White Grip blautkalkið kemur hér í 50ml túbu, en fæst einnig í stærri umbúðum eða 250ml. Blautkalkið er hægt að nota í fjölda æfinga, lyftingarfólk notar það mikið, en vinsælast er það meðal þeirra sem stunda lyftingar eða klifur.
Það er ekki ráðlegt að sprauta þessu í augun á sér ef maður er grátgjarn eða tárast mikið á æfingum, en þetta er algjörlega stórkostlegt efni þegar maður þarf að þurrka lófana og er að slíta upp vænar þyngdir í gymminu.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar