Project X Preworkout Berry Mind Blaster

6.590 kr.

Project X er nýjasta preworkout-snilldin frá Swedish Supplements. Það framkallar sterk og afgerandi áhrif á orku, einbeitingu, sprengikraft og vöðvapump. Þetta er preworkout fyrir þá sem vilja þetta litla EXTRA, sem þó skiptir svo miklu máli.

  • 13 sérvalin innihaldsefni lóðbeint frá djöflinum.
  • Áhrifin vara lengur.
  • Lions Mane, Citikolin, Zynamite
  • Glórulaust gott bragð

Lestu umfjöllun um Project X á Stack3d.com

3 á lager

Vörunúmer: 7350069383280 Flokkur:

Lýsing

Project X Nootropic PWO dekkar allt sem gott prework‘out ætti að innihalda, en þessi samsetning tekur hlutina svo sannarlega skrefinu lengra og notar einnig einstök hráefni eins og Lions mane og Zynamite®. Hér hefur Swedish Supplements þróað algjörlega einstaka vöru fyrir þá sem eru að leita að því nýjasta í þróun preworkout‘a.

Samsetning preworkout‘a er nefnilega í stöðugri vöruþróun. Sumt er stöðugt og það eru innihaldsefnin sem mynda þennan fasta grunn í svona blöndum. Project X Nootropic PWO hefur þessvegna afar traustan burðarás og inniheldur öll þau grunnefni sem búast má við í gæðablöndum.

Project X inniheldur hvorki meira né minna en 13 virk efni, m.a. kreatín, beta-alanín, sítrullín og koffín, öllu blandað í þeim hárnákvæmu hlutföllum til að hámarka útkomuna.  Auk þessara innihaldsefna mun notandi þessa preworkout‘s finna að það sem gerir þetta efni svo einstakt eru viðbótarefni á borð við Linons mane, citicoline, Zynamite® og Yerba Mate.  Þessi innihaldsefni láta þessa vöru skera sig algjörlega úr hópi preworkout‘a með gríðarmikilli virkni.

Lions Mane eða sveppategundin ljónsmakki hefur í rannsóknum sýnt vísbendingar um að efnið hafi áhrif á andlega einbeitingu og árvekni, líkamlega frammistöðu, en einnig jákvæð áhrif á efnaskipti.

Citikolin er efnafræðilegt form kólíns og er talið öflugt „nótrópískt“ heilaheilsuefni eða heilafóðureins og við þekkjum það etv betur. það eykur virkni hvatbera í frumum og hækkar magn ATP. Áhrifin eru meiri fókus og orka á sama tíma. Zynamite® er síðan virkilega áhugavert efnasamband úr blöðum mangó-tjáa. Það er auðvitað náttúrulegt, og rannsóknir hafa sýnt þetta efni vera nootropískt,  og bætandi fyrir íþróttaframmistöðu. Þetta er stutt af nokkrum klínískum rannsóknum. Zynamite® er þannig ætlað að örva andlega og líkamlega frammistöðu. Meðal ávinnings er lækkun á mjólkursýrumyndun í vöðvum, aukin súrefnisupptaka, og þannig hækkun á hámarksafköstum, sem hlýtur að vera það sem við öll viljum.

Lions Mane (Hericum Erinaceus)

 

Zynamite® (Mangifera indica L)

 

Næringagildi:

Serving size: 15 grams
Skammtafjöldi í sölueiningu: (330 g) 22
Beta-alanine 4,000 mg
Creatine monohydrate 3,000 mg
L-tyrosine 2,000 mg
Tárín 1,000 mg
Ljónsmakki 500 mg
Choline bitartrate 500 mg
Koffín 300 mg
Mango leaf extract (Zynamite®) 300 mg
Citicoline (CDP-choline) 250 mg
Yerba Mate Extract 200 mg
Vitamin B3 10 mg

 

Innihaldsefni:
L-citrulline malate, beta alanine, tri-creatine malate, creatine monohydrate, l-tyrosine, taurine, acidity regulator (citric acid), lion’s mane extract (sporocarp) (Hericium erinaceus), aromas, anti-caking agent (silica), sweetener E-951 *, caffeine, citicoline, glutathione, yerba mate extract (leaf) (Ilex paraguariensis A), Zynamite mango extract (leaf) (Mangifera Indica), coloring: E-133, sweetener E-950, vit-B3: niacinamide.

Athugið að hér er á ferðinni fæðubótarefni og það kemur ekki í staðinn fyrir heilbrigt og gott matarræði. Ávallt skal ráðfæra sig við lækni ef vafi leikur á um hvort taka eigi vörur sem þessar.
Ekki ætlað manneskjum með börn á brjósti eða í bumbu, ekki ætlað börnum og alls ekki gæludýrum.

Þér gæti einnig líkað við…